[:is]Störf – fyrr og nú[:]

[:is]Hús Franz Kafka í PragÁstráður Eysteinsson tók við starfi forseta Hugvísindasviðs Háskóla Íslands árið 2008. Samkvæmt erindisbréfi sviðsforseta er hann yfirmaður og akademískur leiðtogi sviðsins, ber ábyrgð á rekstri þess og  hefur frumkvæði að stefnumótun sviðsins, innan marka heildarstefnu Háskóla Íslands. Sviðsforseti er formaður stjórnar sviðsins og helsti tengiliður þess við rektor og miðlæga stjórnsýslu Háskólans, auk þess að vera fulltrúi sviðsins utan skólans.

Ástráður hefur starfað við Háskóla Íslands um árabil, fyrst sem stundakennari, síðan sem lektor og dósent og frá 1994 sem prófessor í almennri bókmenntafræði. Hann hefur verið gistiprófessor við erlenda háskóla og verið virkur í alþjóðlegri rannsóknasamvinnu, auk þess að hafa sinnt margskonar stjórnunarstörfum við Háskóla Íslands.

Á þessum vef er að finna yfirlit um starfsferil, rannsóknir, rit og þýðingar Ástráðs, auk kennslu og stjórnunar sem hann hefur annast. Nánar um Ástráð.[:]

Comments

One response to “[:is]Störf – fyrr og nú[:]”

  1. Mr WordPress Avatar

    Hi, this is a comment.To delete a comment, just log in, and view the posts’ comments, there you will have the option to edit or delete them.